Skilmálar og kjör
Gildir frá: 29.01.2026
Síðast uppfært: 29.01.2026
1. Gildissvið og aðilar
Skilmálar þessir gilda um öll kaup neytenda á stafrænum eSIM gagnapökkum í gegnum vefsvæðið ferdapakki.is („Ferðapakki.is“, „við“, „okkur“).
Með því að versla á ferdapakki.is staðfestir þú að þú hafir kynnt þér skilmála þessa og samþykktir þá.
2. Lýsing á þjónustu
Ferðapakki.is selur eingöngu eSIM gagnapakka (data plans). Þjónustan felst í stafrænum aðgangi að gagnanotkun á farsímaneti í tilteknum löndum/svæðum, samkvæmt þeirri vöru sem valin er í kaupferli.
3. Skilyrði notkunar
Viðskiptavinur ber ábyrgð á:
- að tæki styðji eSIM og sé óháð/ólæst ef við á,
- að fylgja leiðbeiningum um uppsetningu,
- að varðveita afhent gögn (t.d. QR-kóða) sem trúnaðarmál.
Virkjun: Pakkinn telst hefjast þegar eSIM hefur verið sett upp í síma og virkjað (installed og activated).
4. Pöntun og afhending
Afhending er stafræn og tafarlaus og fer fram strax eftir að greiðsla hefur verið samþykkt, með sendingu á gögnum/leiðbeiningum á uppgefið netfang.
Þú berð ábyrgð á að netfang sé rétt og að skoða ruslpóst/óæskilegan póst ef póstur berst ekki.
5. Verð og greiðslur
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Greiðslur fara í gegnum greiðsluþjónustu Teya / Saltpay. Við geymum ekki kortaupplýsingar.
6. Ótakmarkaðir pakkar
Sumir pakkar eru markaðssettir sem „ótakmarkaðir“. Viðskiptavinur samþykkir að:
- „ótakmarkaður“ þýðir ekki endilega ótakmarkaðan háhraða allan gildistíma pakkans.
- Fjarskiptanet/rekstraraðilar í viðkomandi landi geta beitt reglum um sanngjarna notkun (Fair Usage Policy) til að stýra álagi á neti og tryggja sanngjarna dreifingu bandvíddar.
- Ef notkun fer yfir það sem viðkomandi net telur sanngjarnt getur netið lækkað hraða tímabundið.
- Netdeiling (hotspot) getur verið takmörkuð eða óvirk í sumum ótakmörkuðum pökkum.
7. Endurgreiðslur
7.1 Stafræn vara og tafarlaus afhending
Þar sem um er að ræða stafræna vöru sem er afhent samstundis er almennt ekki hægt að „skila“ vörunni. Með því að ljúka kaupum óskar þú eftir því að afhending hefjist strax.
7.2 Kaup eru endanleg
Öll kaup eru endanleg. Rangt val (t.d. rangt land) veitir almennt ekki rétt til endurgreiðslu.
7.3 Endurgreiðsla í undantekningartilvikum (14 dagar)
Við getum veitt endurgreiðslu innan 14 daga ef vandamál er rakið til okkar, enda hafi eSIM ekki verið notað.
8. Netþekja og ábyrgð
Ferðapakki.is er í samstarfi við alþjóðlega birgja. Við berum ekki ábyrgð á:
- truflunum eða þekju á neti fjarskiptaaðila þriðja aðila,
- staðbundnum takmörkunum eða tæknilegum forsendum.
9. Þjónusta og kvartanir
Fyrir aðstoð, kvartanir eða beiðni um endurgreiðslu skal senda tölvupóst á ferdapakki@ferdapakki.is.
10. Persónuvernd
Við vinnum nauðsynlegar persónuupplýsingar til að afgreiða pantanir í samræmi við persónuverndarlöggjöf. Sjá persónuverndarstefnu fyrir nánari upplýsingar.
11. Breytingar
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra skilmála þessa. Uppfærslur taka gildi við birtingu á vefsvæðinu.
12. Lög og ágreiningur
Íslensk lög gilda um skilmála þessa. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.